Samvaxin í Neskirkju

Næsti viðburður hjá ÆSKR verður í Neskirkju þriðjudaginn 8. október kl.19.30-21.30.
Farið verður í skemmtilega samhrisitngsleiki og er þetta því góð upphitun fyrir Landsmót ÆSKÞ sem fer fram síðar í mánuðinum.

Það er mjög gaman fyrir félögin að hittast til að kynnast og sjá að það er fullt fullt af krökkum í kirkjustarfinu og þess vegna hvetjum við ykkur öll til að mæta á þetta frábæra leikjakvöld!

Skráning fer fram á aeskr(hjá)kirkjan.is og rennur skráningarfrestur út kl.12.00 þann 8.október.

Hlökkum til að sjá ykkur glöð og kát!