Haustnámskeið að Holtavegi

Miðvikudaginn 25. september kl. 17.00-21.00 verður haldið námskeið fyrir leiðtoga og aðstoðarleiðtoga í æskulýðsstarfi kirkjunnar og KFUM og KFUK að Holtavegi 28 (húsi KFUM og KFUK). Boðið verður upp á létta hressingu í upphafi samverunnar og kvöldmat.

Námskeiðið skiptist í tvo ólíka hluta sem þó eru báðir mjög mikilvægir í æskulýðsstarfinu:

„Hvernig veistu að Guð sé til?“
Hvernig svörum við áleitnum spurningum frá börnum og unglingum?

Séra Gunnar Jóhannesson ræðir um mikilvægi og gildi trúvarnar í æskulýðsstarfi. Boðið verður upp á umræður og spjall á eftir.

Leikjafræði og leikjafjör
Grundvallaratriði leikjafræðanna rifjuð upp og nýir og spennandi leikir kynntir.

Petra Eiríksdóttir og Hjördís Rós Jónsdóttir æskulýðsfulltrúar hjá KFUM og KFUK annast fræðsluna.

Í lok námskeiðsins verður helgistund með áherslu á samfélag og upplifun.

Tekið er á móti skráningu hjá biskupsstofu í síma 528 4000 og á netfanginu kristin.arnardottir @kirkjan.is

Skráningargjald eru litlar 1000 kr. og er síðasti skráningardagur mánudagurinn 23.september.

Allir leiðtogar, aðstoðarleiðtogar og aðrir sem koma að barna- og æskulýðsstarfi sem og aðrir áhugasamir eru hvattir til að sækja námskeiðið.

Námskeiðið er samstarfsverkefni Biskupsstofu, KFUM og KFUK, ÆNK, ÆSKR og ÆSKÞ