Lát rödd þína heyrast!

Hér er kostaboð fyrir alla leiðtoga og aðstoðarleiðtoga í barna- og unglingastarfi 15 ára og eldri. Ekki láta þetta framhjá þér fara!

Námskeið í Seltjarnaneskirkju miðvikudaginn 6. mars kl 18-21.30 þar sem Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og Halldór Elías Guðmundsson, æskulýðsfulltrúi KFUM og KFUK sjá um fræðsluna.

Dagskrá:
18.00 Mæting
18.10 Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona
Kanntu að koma þínu á framfæri?
Læturðu rödd þína heyrast?
Veistu að þú ert fyrirmynd?
19.10 Kvöldmatur og samfélag
20.00 Halldór Elías Guðmundsson
Ertu pappakassi?
Kirkjan okkar- hvernig höfum við áhrif ?
21.00 Helgistund í höndum ungra kvenna í kirkjunni
21.30 Námskeiðislok

 Námskeiðið er þátttakendum og kirkjum að kostnaðarlausu, en það er mikilvægt að skrá þátttakendur fyrir 1. mars hjá aeskth@aeskth.is

Að námskeiðinu standa ÆSKÞ, ÆSKR, Kjalarnessprófastsdæmi, KFUM og KFUK og Biskupsstofa